831. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarins, ráðhúsinu Aðalstræti, föstudaginn 13. nóvember kl. 14:30.
Dagskrá:
2610059 - Gjaldskrár 2027 - fyrri umræða
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að gjaldskrá Bolungarvíkurkaupstaðar fyrir árið 2027, sem bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar á fundi sínum 10. nóvember 2026.
2608013 - Fjárhagsáætlun Bolungarvíkurkaupstaðar 2027 - fyrri umræða
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Bolungarvíkurkaupstaðar fyrir árið 2027, sem bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar á fundi sínum 10. nóvember 2026.
2611025 - Sameinuð almannavarnarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum
Lagt fram erindi um fyrirhugaða sameiningu almannavarnarnefnda Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps. Bæjarráð tók jákvætt í erindið á fundi sínum 10. nóvember 2026 og samþykkti að halda áfram vinnu við málið. Óskað er eftir afstöðu bæjarstjórnar til áframhaldandi undirbúnings að sameiginlegri almannavarnarnefnd.
2610004F - Bæjarráð - 2508
Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2508. fundar bæjarráðs frá 20. október 2026.
2610005F - Bæjarráð - 2509
Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2509. fundar bæjarráðs frá 26. október 2026.
2611003F - Bæjarráð - 2510
Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2510. fundar bæjarráðs frá 5. nóvember 2026.
2611004F - Bæjarráð - 2511
Lögð fram til staðfestingar fundargerð 2511. fundar bæjarráðs frá 10. nóvember 2026.
2610002F - Velferðarráð - 10/26
Lögð fram til staðfestingar fundargerð velferðarráðs frá 14. október 2026.
2610006F - Fræðslumála- og æskulýðsráð - 10/26
Lögð fram til staðfestingar fundargerð fræðslumála- og æskulýðsráðs frá 29. október 2026.
2611001F - Hafnar- og atvinnumálaráð - 26 03
Lögð fram til staðfestingar fundargerð hafnar- og atvinnumálaráðs frá 4. nóvember 2026.
2611002F - Umhverfismálaráð - 11/26
Lögð fram til staðfestingar fundargerð umhverfismálaráðs frá 5. nóvember 2026.
