Ástrós lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2014. Árið 2017 lauk hún B.Ed.-prófi í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands og árið 2021 lauk hún meistaraprófi í leikskólakennarafræðum með áherslu á mál og læsi.
Ástrós hefur starfað við leikskólann Glaðheimar frá árinu 2017. Á þeim tíma hefur hún gegnt stöðum leikskólakennara, deildarstjóra og sérkennslustjóra, en því starfi hefur hún sinnt frá árinu 2022.
Ástrós er gift Magnúsi Traustasyni og saman eiga þau þrjú börn. Hún hefur búið í Bolungarvík síðan 2017 og þar áður bjó hún á Suðureyri þar sem hún er fædd og uppalin.
Við óskum Ástrós Þóru Valsdóttur innilega til hamingju með ráðninguna sem leikskólastjóri Glaðheima og hlökkum til samstarfsins.
