Viltu styðja ungmenni þitt í að efla félagsfærni sína og öðlast um leið aukinn skilning á einhverfu og ADHD
Peers félagsfærni námskeið í Bolungarvík fyrir foreldra og börn. Laufey Eyþórsdóttir einhverfuráðgjafi í samstarfi við Bolungarvíkurkaupstað standa fyrir 6 vikna námskeiði í Grunnskóla Bolungarvíkur.
Fyrsti klukkutími námskeiðsins er farið í PEERS félagsfærni námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 11 ára til 18 ára, börn og unglingar taka þátt í þessum hluta. Síðustu 30 mínúturnar er fræðsla um einhverfu og ADHD, börn og unglingar taka ekki þátt í þessum hluta.
Þ.e. fyrsti klukkutíminn foreldrar og börn, síðasti hálftíminn, bara foreldrar.
Hagnýtar upplýsingar:
Staðsetning: Grunnskólinn í Bolungarvík.
Tímabil námskeiðs: hefst þriðjudaginn 10 nóvember, líkur þriðjudaginn 15. desember.
Tímasetning: þriðjudaga kl. 16:30 – 18:00 í (6 skipti).
Námskeiðið kostar 50 þúsund, kostar ekki aukalega þó báðir foreldrar mæta.
Félagsmenn í Verkalýðs.- og sjómannafélagi Bolungarvíkur og í VerkVest fá námskeiðið endurgreitt frá félögum sínum. Foreldrar hvattir til að leita til síns stéttafélags ef þau eru ekki skráð í ofantöldum félögum.
Skráning fer fram með því að senda á siggahulda@bolungarvik.is til og með mánudagsins 9. nóvember.
