Fara í efni
01.10.2026 Fréttir, Tilkynningar

Bergið headspace opnar á Vestfjörðum

Deildu

Bergið headspace opnar á Vestfjörðum

Bergið headspace hefur gert samning við Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp um að bjóða ungu fólki á svæðinu upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning. Fyrsta viðvera Bergsins verður 22. og 23. október og munu viðtöl fara fram á Bókasafninu á Ísafirði. Skráning fer fram á bergid.is

Með opnuninni á Vestfjörðum verður þetta tíunda staðsetning Bergsins á landinu og mikilvægt skref í þeirri vegferð að gera þjónustuna aðgengilega fyrir ungt fólk óháð búsetu.

Það skiptir Bergið miklu máli að þjónustan standi ungu fólki til boða sem víðast um landið. Markmiðið er að færa stuðninginn nær ungu fólki, þar sem það býr og stundar nám, og gera það eins einfalt og mögulegt er að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.

Bergið vill jafnframt þakka Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhreppi fyrir einstaklega snögg viðbrögð, mikinn samstarfsvilja og jákvæðni við að koma þjónustunni á fót. Frá fyrstu samtölum hefur verið skýr sameiginlegur vilji til að gera þjónustuna að veruleika og tryggja ungu fólki á svæðinu aukið aðgengi að stuðningi.

Bergið býður ungu fólki á aldrinum 12–25 ára upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning, án tilvísunar. Hægt er að leita til Bergsins með hvað sem er – ekkert vandamál er of lítið eða of stórt. Markmiðið er að ungt fólk geti fengið stuðning snemma, á einfaldan og aðgengilegan hátt og á sínum eigin forsendum.