Fara í efni
10.04.2026 Fréttir

Bolungarvík gerir samning við Kómedíuleikhúsið

Deildu

Bolungarvíkurkaupstaður hefur gert samning við Elfar Loga Hannesson, leikara og stofnanda Kómedíuleikhússins, fyrir árið 2026. Samstarfið felur í sér fjölbreytta skemmtun fyrir íbúa á öllum aldri.

Á árinu mun Elfar Logi standa fyrir eftirfarandi viðburðum:

  • Leiksýning/listviðburður í Grunnskóla Bolungarvíkur

  • Leiksýning/listviðburður fyrir börnin í Leikskólanum Glaðheima

  • Bókmenntadagskrá fyrir eldri borgara

  • Listviðburður á sjómannadaginn

Að auki mun Elfar Logi hafa samband við jólasveinana, til þess að fá þá til byggða á litlu jólunum í grunnskóla Bolungarvíkur og leikskóla Bolungarvíkur, ásamt fyrsta sunnudag í aðventu, sem hefur orðið fastur og vinsæll liður í aðventuhátíð bæjarins. 

Bolungarvíkurkaupstaður hlakkar til samstarfsins sem mun auðga menningarlíf bæjarins enn frekar.