Bríet María Ásgrímsdóttir var útnefnd íþróttamanneskja Bolungarvíkur 2025 í Safnaðarheimili Bolungarvíkur í gær og Katrín Lind Rúnarsdótir var útnefnd efnilegasta Íþróttamanneskja Bolungarvíkur 2025.
Guðlaug Rós Hólmssteinsdóttir, formaður fræðslumála- og æskulýðsráðs, bauð gesti velkomna og kynnti dagskrána.
Það er bæjarstjórn Bolungarvíkur sem útnefndir íþróttamanneskju ársins og efnilegustu íþróttameskju ársins á grundvelli faglegrar niðurstöðu fræðslumála- og æskulýðsráðs sem hefur veg og vanda að kjörinu.
Viðurkenningar voru veittar og farið yfir árangur íþróttafólks á árinu. Karitas Sigurlaug Ingimarsdóttir kynnti val á íþróttamanneskju Bolungarvíkur 2025 og efnilegustu íþróttamanneskju Bolungarvíkur 2025.
Tilnefnd til íþróttamanneskju Bolungarvíkur 2025 voru:
- Flosi Valgeir Jakobson – Golfklúbbur Bolungarvíkur
Flosi Valgeir hefur iðkað golf í 17 ár. Hann leggur sig ávallt 100% fram um að skila góðu verki innan sem utan vallar. Árið 2025 lenti Flosi Valgeir í 2.sæti á meistaramóti Golfklúbbs Bolungarvíkur og var í aðalhlutverki í sveit Golfklúbbsins sem vann sér inn sæti í efstu deild og tekur þátt í deild þeirra bestu á þessu ári. Flosi hefur frá upphafi golfferilsins verið að keppa á hæsta stigi golfíþróttarinar og náði hann að tryggja sér rétt til þáttöku í íslandmóti einstaklinga 2025 með góðum árangri í sumar en aðeins 100 bestu kylfingar landsins hafa þátttökurétt í því móti. - Bríet María Ásgrímsdóttir – Körfuknattleikdeild Vestra
Bríet María hefur æft körfubolta hjá körfuknattleiksdeild Vestra um langt skeið. Hún er einn af lykilleikmönnum nýendurvakins meistaraflokks kvenna og gegnir jafnframt hlutverki fyrirliða þrátt fyrir ungan aldur. Því hlutverki sinnir hún af ábyrgð. Bríet María leggur mikið á sig til að ná árangri, bæði fyrir sig sjálfa og lið sitt. Hún er traustur leiðtogi, góð skytta og öflug varnarmaður. Hún spilar ávallt af helium hug og hvetur samherja sína til að verða betri með hverjum deginum. Auk leikmannahlutverksins tekur Bríet María þátt í starfi deildarinnar með þjálfun yngri flokka. Hún er góð fyrirmynd, bæði á vellinum og utan hans og mikilvægur hlekkur í starfi körfuboltadeildar Vestra. - Guðmundur Páll Einarsson – Knattspyrnudeild Vestra
Knattspyrnudeild Vestra er stolt að geta tilnefnt Guðmund Pál Einarsson til íþróttamanneskju Bolungarvíkur. Guðmundur hefur æft og keppt fyrir BÍ/Bolungarvík og Vestra frá því að hann byrjaði að æfa knattspyrnu. Guðmundur Páll spilaði 12 leiki með Vestra árið 2025 og var hluti af meistaraflokksliði Vestra sem varð bikarmeistari. Hann leggur sig ávallt 100% fram og stundar íþrótt sína af miklu kappi og er góður félagsmaður. Guðmundur Páll er heilbrigður og metnaðarfullur íþróttamaður, sem stundar íþrótt sína af miklu kappi og er góð fyrirmynd yngri iðkenda. - Margrét Gunnardóttir – Hestamannafélagið Gnýr
Margrét hefur æft hestaíþróttir frá unga aldri og verið iðkandi í Hestamannafélaginu Gný frá upphafi síns ferils en einnig æfði hún sund með Ungmennafélagi Bolungarvíkur með grunnskólagöngu sinni. Margrét er dugleg og samviskusöm gagnvart hestaíþróttinni ásamt öðru sem hún gerir. Hún hefur sótt hestamót með góðum árangri og sýnt mikin dugnað og úthald í íþróttinni. Margrét útskrifaðist síðastliðið vor frá Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, af Hestabraut með flottan árangur og stefnir á áframhaldandi nám tengt íþróttinni.
Tilnefnd til efnilegustu íþróttamanneskju ársins voru:
- Marinó Steinar Hagbarðsson – knattspyrnudeild Vestra
Knattspyrnudeild Vestra er stolt að geta tilnefnt Marinó Steinar Hagbarðsson til efnilegasta íþróttamanneskju Bolungarvíkur. Marinó Steinar var hluti af æfingahóp meistaraflokks Vestra sem varð bikarmeistari árið 2025. Hann stóð sig einnig vel með yngri liðum félagsins. Marinó Steinar leggur sig ávallt 100% fram og stundar íþrótt sína af miklu kappi. Hann er heilbrigður og metnaðarfullur íþróttamaður, góð fyrirmynd og góður félagsmaður. - Katrín Lind Rúnarsdóttir – Sunddeild UMFB
Katrín Lind hefur æft sund í 9 ár eða síðan síðan hún hóf skólagöngu. Hún æfir með afrekshóp sunddeildarinnar og mætir á æfingar 5 sinnum í viku í 60-90 mínútur í senn. Katrín Lind hefur ávallt sýnt mikla ástundun, hún er góður félagi og mikil fyrirmynd yngri iðkenda. Hún sýnir mikinn sjálfsaga er varðar mætingu á æfingar, er vinnusöm og gerir allt sem hún er beðin um. Undanfarin ár hefur Katrín Lind vaxið og dafnað sem sundkona. Ár árinu hefur hún tekið miklum framförum sem hafa skilað sér í bætingum á þeim sundmótum sem hún hefur tekið þátt á. Katrín Lind lenti í 3. sæti í 400 metra skriðusundi á Sumarmeistaramóti Íslands sem haldið var í júní. Katrín Lind synti sig inn á sitt fyrsta Íslandsmeistaramót á árinu og hefur nú þegar náð lágmörkum á RIG,Reykjavík International Games, sem fer fram í janúar 2026. Það verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni. - Sigurður Hólmsteinn Olgeirsson - Golfklúbbur Bolungarvíkur
Sigurður Hólmsteinn hefur æft golf í 2 ár. Hann æfir 2-3 sinnum í viku ásamt því að mæta nánast daglega sjálfur til að æfa sig. Sigurður hefur þann góða eiginleika að vera mjög yfirvegaður þegar hann spilar golf sem passar mjög vel við golfíþróttina. Á árinu 2025 varð Sigurður í 1.sæti í unglingaflokki á sjávarútvegsmótaröð Vestfjarða og í 1. Sæti í meistaramóti Golfklúbbs Bolungarvíkur í unglingaflokki. Sigurður hefur náð ótrúlegum árangri á skömmum tíma í íþróttinni og þrátt fyrir ungan aldur er hann að spila á pari við mun reyndari golfara. Sigurður mun ná langt í golfíþróttinni með áframhaldandi áhuga og ástundun og ekki líður að löngu þar til hann verður einn af bestu leikmönnum klúbbsins. Hann sýndi það í sumar að með æfingum og áhuga er hægt að ná langt í íþróttinni því á skömmum tíma hefur Sigurður lækkað umtalsvert í forgjöf og verður spennandi að fylgjast með Sigurði á næstu árum. - Vagnfríður Elsa Kristbjörnsdóttir – Körfuknattleiksdeild Vestra
Vagnfríður Elsa hefur æft körfubolta hjá körfuknattleiksdeild Vestra frá árinu 2021. Hún er einn af lykilleikmönnum 10.flokks kvenna þrátt fyrir að vera að spila einu ári upp fyrir sig með þeim flokki. Vagnfríður Elsa er metnaðarfullur körfuboltaleikmaður, lykilleikmaður í sínu liði og nýtur trausts samherja. Hún er leiðtogi og skorast aldrei undan þeirri ábyrgð sem á hana er lögð þegar lið hennar þarfnast öflugs sóknar-eða varnarleiks. Vagnfríður Elsa á framtíðina fyrir sér í körfubolta haldi hún áfram á sömu braut.
Viðurkenningar fyrir góðan árangur og ástundun á árinu 2025 hljóta eftirfarandi íþróttamanneskjur;
Frá Sunddeild Ungmennafélags Bolungarvíkur hljóta viðurkenningar fyrir góðan árangur og ástundun
- Davíð Páll Jónsson hefur átt gott sundár þar sem árangur hans hefur verið eftirtektarverður. Davíð Páll tók þátt á Íslandsmeistaramóti aldurflokka á árinu ásamt því að synda á Aldursflokkameistaramóti Íslands (AMÍ). Á sínu fyrsta AMÍ sýndi Davíð Páll hversu megnugur hann er þar sem hann lenti í 3. sæti í 100 metra skriðsundi, 6. sæti í 50 metra skriðsundi, 6. sæti í 50 metra baksundi og 7. sæti í 50 metra bringusundi.
- Julia Magdalena hefur sýnt miklar framfarir á árinu sem hafa áunnist með frábærri mætingu á æfingar. Julia tók þátt á Aldursflokkameistaramóti Íslands á árinu með góðum árangri.
- Stefanía Rún Hjartardóttir hefur sýnt að með dugnaði og elju gerast góðir hlutir þar sem hún hefur verið að bætti sína tíma töluvert á síðustu mánuðum síðasta árs. Stefanía Rún er framarlega í sínum aldursflokki og sýndi það svo sannarlega á Íslandsmeistaramótinu bæði í 25 og 50 metra laug. Hún tók þátt á Reykjavík International Games ásamt Sumarmeistaramóti Islands þar sem hún hafnaði í 3. sæti í 200 metra bringusundi.
Frá Körfuknattleiksdeild Vestra hljóta tveir leikmenn viðurkenningar fyrir árangur og framfarir.
- Valgerður Karen Ásgrímsdóttir er leikmaður 10.flokks Vestra og hefur æft körfubolta í 10.ár. Hún er einn af lykilleikmönnum 10.flokks kvenna þrátt fyrir að vera að spila einu ári upp fyrir sig. Valgerður Karen er metnaðarfullur körfuboltaleikmaður sem á framtíðina fyrir sér í körfubolta haldi hún áfram á sömu braut.
- Jensína Evelyn Rendall er leikmaður bæði yngri flokka Vestra og meistaraflokks kvenna. Hún hefur æft körfubolta í 10 ár. Jensína Evelyn hefur tekið framförum á þessu ári seme inn af lykilleikmönnum nýendurvakins meistarflokks kvenna og hefur æft af krafti í þeim hópi í haust. -Jensína er sem stendur í skiptinámi í Ungverjalandi og mun…… veita viðurkenningu hennar móttöku.
Frá Golfklúbbi Bolungarvíkur hljóta eftirfarandi viðurkenningar fyrir góðan árangur árið 2025
- Benedikt Jóhannsson fyrir góðan árangur. Benedikt var í toppbáráttunni í Sjávarútvegsmótarröð Vestfjarða. Efstur í höggleik miðvikudagsmótaröð Golfklúbbs Bolungarvíkur og á aðeins 3 sumrum hefur hann skipað sér a meðal þeirra bestu í Golfklúbbnum.
- Eydís Birta Ingólfsdóttir varð í 1. Sæti í meistaramóti Golfklúbbs Bolungarvíkur, og í 1. sæti í Arctic Fish mótinu. Á einu ári hefur Eydís náð að skipa sér í hóp bæði bestu kvenngolfara Golfklúbbs Bolungarvíkur og Vestfjarða.
- Þorsteinn Goði Einarsson með eljusemi og þrotlausri iðkun á golfíþróttinni árið 2024 kom Þorsteinn Goði eins og stormsveipur inn í sumarið 2025 sem skilaði honum efsta sætinu í Miðvikudagsmotaröðinni og einnig stóð hann uppi sem sigurvegari í Opnum flokki á Jakobs Valgeir mótinu í Bolungarvík.
- Sveit GBO hlýtur viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu en sveitin gerði sér lítið fyrir og sigraði 2.deildina. Sigurinn vannst eftir mjög spennandi rimmu við Golfklúbb Leynis Akranesi og eftir fimm jafnar viðureignir náðist sigurinn loksins í bráðabana. Sveitin mun því spila í deild þeirra bestu á þessu ári. Sveit Golfklúbbs Bolungarvíkur skipa:
- Flosi Valgeir Jakobsson
- Emil Ragnarsson
- Ragnar Már Ríkarðsson
- Davíð Gunnlaugsson
- Ernir Steinn Arnarsson
- Anton Helgi Guðjónsson
- Jón Arnar Sigurðsson
- Ingi Rúnar Birgisson
- Daði Valgeir Jakobsson Liðsstjóri
- Óli Rafn Kristinsson aðstoðarliðsstjóri
Að lokinni athöfn var boðið upp á kaffi og veitingar.
