Á fundi bæjarstjórnar í vikunni var samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun vegna endurnýjunar á eldhústækjum á hjúkrunarheimilinu Bergi. Til stendur að kaupa nýjan ofn, eldavél og hitaborð ásamt fylgihlutum en einnig þarf að fara í breytingar á sjálfu eldhúsinu svo nýi búnaðurinn nýtist sem skyldi. Þessar endurbætur nýtast bæði hjúkrunarheimilinu sjálfu en auka einnig getuna til að bjóða eldri íbúum bæjarins hádegismat. Viðaukinn hefur óveruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu þar sem um fjárfestingu er að ræða og tilfærslu innan rekstrar. Heildarkostnaður breytinganna er áætlaður rétt rúmlega 4 milljónir króna.
02.07.2026
Búnaður á Bergi endurnýjaður
