Drög að endurskoðuðu hættumati vegna ofanflóða í Bolungarvík hefur verið lagt fram til kynningar. Endurskoðað hættumat var unnið af Veðurstofu Íslands fyrir Bolungarvíkurkaupstað í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats með síðari breytingum. Hættumatið er aðgengilegt á heimasíðu Veðurstofu Íslands ásamt nánari upplýsingum og á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar.
Gildandi hættumat er frá árinu 2003. Endurskoðunin tekur mið af þeim varnarvirkjum sem reist voru undir Traðarhyrnu á árunum 2008 til 2013; tveimur varnargörðum og átta snjóflóðakeilum. Helstu niðurstöður eru þær að endurskoðað hættumat staðfestir að snjóflóðavarnirnar undir Traðarhyrnu hafa dregið verulega úr hættu í byggðinni. Sex íbúðarhús, sem áður voru á hættusvæði C, eru hættusvæði B skv. nýja matinu og um 50 hús, sem voru áður á B og C svæði, verða á A svæði. Hættusvæði C, sem markar mestu hættuna, færist upp fyrir byggðina. Þó er ekki hægt að útiloka alla áhættu og áfram eru skilgreind sérstök viðbragðs- og rýmingarsvæði.
Frestur til að senda inn athugasemdir er til 15. október og skulu þær berast til Bolungarvíkurkaupstaðar, Aðalstræti 12 , 415 Bolungarvík eða á netfangið bolungarvik@bolungarvik.is.
Skýrslur og kort
