Bæjarstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar hefur samþykkt breytingar á fyrirkomulagi félagsþjónustu sveitarfélagsins með það að markmiði að efla þjónustu við íbúa og styrkja rekstur málaflokksins.
Félagsmálastjórnun Bolungarvíkurkaupstaðar verður unnin í samstarfi við Ísafjarðarbæ en þjónustan áfram veitt í Bolungarvík. Bolungarvíkurkaupstaður er nú þegar með samning við Ísafjarðarbæ um ýmsa þætti velferðarþjónustu og byggir þessi breyting á þeirri góðu reynslu sem skapast hefur á undanförnum árum.
Fyrstu skref breytinganna snúa að skipulagi og stjórnun þjónustunnar og hafa ekki áhrif á réttindi íbúa eða aðgengi að þjónustunni. Íbúar munu áfram geta leitað til félagsþjónustu Bolungarvíkur á Aðalstræti 10-12 eða haft samband á netfangið velferd@bolungarvik.is.
Næstu vikur verður unnið að mati á þjónustuþörf sveitarfélagsins í samstarfi við þjónustuþega og starfsfólk félagsþjónustunnar. Íbúar verða upplýstir um framvindu verkefnisins og allar breytingar, sem kunna að hafa áhrif á þjónustu, verða kynntar sérstaklega áður en þær taka gildi.
