Fara í efni
04.11.2026 Fréttir

Fiðraðir vinir í Glaðheimum

Deildu

Það er óhætt að segja að gleðin sé í Glaðheimum þessa dagana. Fimm fiðraðir vinir – hænur, hafa flutt á leikskólalóðina og börnin sýna þeim mikinn áhuga. Þau hafa tekið þátt í að gefa þeim að borða og fylgjast auðvitað vel með. Fram undan hjá þeim er eitt af skemmtilegustu verkefnunum, að velja nöfn á hænurnar, og ríkir mikil eftirvænting meðal barnanna.

Hænurnar eiga sér sögu í skólasamfélagi Bolungarvíkur. Fyrir nokkrum árum kom hugmyndin fram á nemendaþingi í Grunnskóla Bolungarvíkur og í kjölfarið smíðuðu nemendur hænsnakofann í valnámi í smíðum. Síðan þá hafa hænurnar verið kærkominn hluti af skólastarfinu og veitt nemendum ótal tækifæri til að læra um ábyrgð, umhyggju og samskipti við dýr.

Yngstu íbúar Bolungarvíkur fá núna tækifæri til að kynnast hænunum, sem munu án efa færa þeim dýrmætar lærdómsstundir og ánægju.