Fara í efni
14.08.2026 Tilkynningar

Fjallskilaseðill 2026

Deildu

Aðalleitardagur verður laugardaginn 19. September 2026.

Smalað verður í Syðridal og Óslandi. 
Réttað verður í lögrétt á Sandi í Syðridal og Ósi. 
Réttarstjóri er Arnþór Jónsson.

Smalað verður í Skálavík, Hlíðardal, Tungudal og Hólslandi.
Réttað verður í Minni-Hlíð.
Réttarstjóri er Halldóra Íris Sigurgeirsdóttir.

Stigahlíð, Keflavík og Öskubakur verða smöluð eftir samkomulagi bænda.

Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.

Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.

Fjáreigendur athugið, að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 5. október 2026.

Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.

Fjáreigendur sjá sjálfur um útréttir á sínu fé.

Mælst er til þess að fjáreigiendur leggi til smala á þeim svæðum sem þeir eiga/hafa átt ær á. Fjáreigendur og lögbýli leggi til smala samkvæmt eftirfarandi: