Fara í efni
08.07.2026 Tilkynningar

Framkvæmdir hafnar í Völusteinsstræti

Deildu

Við viljum vekja athygli á að framkvæmdir eru hafnar í Völusteinsstræti. Vegna framkvæmdanna verður götulokun við framkvæmdasvæðið á meðan á verkinu stendur.
Við biðjum íbúa og aðra vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og biðjum fólk um að virða merkingar og lokanir á svæðinu.
Lögð verður áhersla á að upplýsa íbúa og aðra hagsmunaaðila reglulega um framgang verksins, breytingar á aðgengi og aðra þætti sem kunna að hafa áhrif á daglegt líf í nágrenninu.
Nánari upplýsingar verða birtar eftir því sem verkinu vindur fram.