Fara í efni
20.08.2026 Tilkynningar

Framkvæmdir hafnar við bílaplanið við sundlaugina

Deildu

Framkvæmdir eru hafnar við bílaplanið við sundlaugina í Bolungarvík. Markmið framkvæmdanna er að bæta aðstöðu á svæðinu og er stefnt að því að malbikun fari fram fyrstu helgina í september, ef veður og aðstæður leyfa.

Á meðan framkvæmdir standa yfir er þeim sem hyggjast sækja sundlaugina bent á að leggja bifreiðum sínum við Höfðastíg.

Mikilvægt er að hafa í huga að grunnskólinn byrjar á mánudaginn og eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát við akstur um Höfðastíg og nágrenni skólans þar sem börn verða á ferli og við leik.

Sveitarfélagið Bolungarvík þakkar íbúum og gestum fyrir skilning og biður fólk um að virða þær merkingar og leiðbeiningar sem settar verða upp á framkvæmdatímanum.