Framkvæmdir við Lundahverfi eru í góðum gangi og mun Bolungarvíkurkaupstaður vinna áfram að gatnagerð, götulýsingu, vatns- og fráveitulögnum fram eftir hausti 2026 og á vormánuðum 2027. Bolungarvíkurkaupstaður hvetur þá sem fengu lóðir úthlutaðar í hverfinu til að huga að næstu skrefum, vinna aðaluppdrætti og undirbúa umsóknir um byggingarleyfi. Lóðarblöð eru aðgengileg fyrir lóðarhafa og hönnuði á map.is/bolungarvik undir flipanum Teikningar af byggingum. Nú er góður tími fyrir lóðarhafa að undirbúa framkvæmdir með það að markmiði að hefja byggingu nýs húsnæðis á árinu 2027.
Lóðarhafar sem hafa spurningar um stöðu framkvæmda, byggingarleyfi eða önnur atriði sem tengjast uppbyggingu í hverfinu eru hvattir til að hafa samband við Finnboga Bjarnason, forstöðumann tæknideildar Bolungarvíkurkaupstaðar – finnbogi@bolungarvik.is , sem veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar um næstu skref.

