Fara í efni
06.08.2026 Fréttir, Tilkynningar

Framkvæmdir við gatnamót Hlíðarstrætis og Völusteinsstrætis

Deildu

Unnið er að tengingu vatnsveitu við gatnamót Hlíðarstrætis og Völusteinsstrætis í dag sem hluta af áframhaldandi framkvæmdum á svæðinu.

Stefnt er að því að vatnstenging verði komin í lag fljótlega eftir hádegi.

Vegna framkvæmdanna verða Hlíðarstræti og Völusteinsstræti botnlangar á meðan unnið er við gatnamótin. Þetta fyrirkomulag verður í gildi þar til skurði við gatnamótin hefur verið lokað á ný.

Bolungarvíkurkaupstaður þakkar íbúum og öðrum vegfarendum fyrir þolinmæði og skilning meðan á framkvæmdum stendur.