Fara í efni
15.06.2026 Fréttir

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir tekur við sem skólastjóri Bolungarvíkur

Deildu

Guðbjörg Stefanía er gift Kristbirni Ólafssyni bifvélavirkja og saman eiga þau fjögur börn. Guðbjörg lítur á sig sem Bolvíking enda ólst hún hér upp og hefur búið hér mest alla ævi sína. 

Guðbjörg hefur starfsréttindi sem bæði leik- og grunnskólakennari. Hún útskrifaðist frá Háskóla Íslands með B.Ed.-próf í grunnskólakennarfræðum árið 2010 og lauk síðan M.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum árið 2014. Guðbjörg er í Félagi sérkennara á Íslandi þar og lauk hún viðbótardiplómu í sérkennslufræði og skóla margbreytileikans haustið 2021. Einnig hefur hún lokið einingum í Uppeldis- og menntunarfræði og Opinberri stjórnsýslu. 

Guðbjörg hefur víðtæka starfsreynslu í skólakerfinu hér í Bolungarvík. Hún starfaði við leikskólann Glaðheimar á árunum 2012-2022, fyrst sem deildarstjóri en síðar sem aðstoðarleikskólastjóri og sérkennslustjóri. Haustið 2023 hóf Guðbjörg störf sem deildarstjóri við Grunnskóla Bolungarvíkur og hefur á síðastliðnu skólaári einnig gengt starfi deildarstjóra stoðþjónustu.

Síðastliðin 12 ár, 2014-2026, var Guðbjörg bæjarfulltrúi í Bolungarvíkurkaupstað. Þar gengdi hún meðal annars hlutverki formanns bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar, auk þess að sitja í ráðum og nefndum fyrir hönd kaupstaðarins. 

Við óskum henni hjartanlega til hamingju og velfarnaðar í starfi.