Hanna Þórey Björnsdóttir hefur verið ráðin tómstundafulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar og hefur þegar hafið störf. Í starfi sínu mun Hanna Þórey leiða og þróa fjölbreytt tómstunda-, æskulýðs- og félagsstarf fyrir íbúa sveitarfélagsins. Eitt af helstu verkefnum hennar verður að efla þátttöku í samfélagsstarfi, styrkja samstarf við félög og stofnanir og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu tómstundastarfs í Bolungarvík.
Hanna mun hafa umsjón með daglegri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Tópaz, þar sem áhersla verður lögð á öflugt og fjölbreytt starf fyrir ungmenni. Hún mun jafnframt sinna samstarfi við ungmennaráð og nemendaráð auk þess að koma að forvarna- og fræðsluverkefnum fyrir börn og ungmenni.
Þá mun Hanna stýra félagsstarfi eldri borgara í samvinnu við Félag eldri borgara í Bolungarvík, skipuleggja viðburði, námskeið og samverustundir og vinna að því að efla félagslega virkni og þátttöku eldri íbúa sveitarfélagsins. Einnig mun hún hafa umsjón með vinnuskóla Bolungarvíkur sem starfræktur er yfir sumartímann.
Við bjóðum Hönnu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til að fylgjast með þeim fjölbreyttu verkefnum og tækifærum sem fram undan eru á sviði tómstunda-, æskulýðs- og félagsstarfs í sveitarfélaginu.
Netfangið hjá Hönnu er hannabj@bolungarvik.is
