Fara í efni
04.02.2026 Tilkynningar

Hleðslustöðvar fjarlægðar

Deildu

Hleðslustöðvar við Félagsheimilið á vegum Bolungarvíkurkaupstaðar hafa verið teknar úr notkun. Ástæðan fyrir því er slysahætta þar sem snúrur liggja þvert yfir gangbraut og stuðla að fallhættu. Nýjar hleðslustöðvar verða settar upp á öruggari stað.

Borgunarkerfi með nýjum hleðslustöðvum

Hleðslustöðvar Bolungarvíkur hafa verið gjaldfrjálsar frá því þær voru settar upp, en tekin hefur verið sú ákvörðun að taka upp borgunarkerfi. Hleðslustöðvum við félagsheimili og sundlaugina verður skipt út fyrir hleðslustöðvar frá eONE ehf (e1) með gjaldskyldu á næstu vikum. Hleðslustöðvum við Ráðhúsið verður ekki skipt út, en þær eru eingöngu ætlaðar fyrir starfsfólk og gesti Ráðhússins.

Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við byggingarfulltrúa Bolungarvíkur

Finnbogi Bjarnason
Forstöðumaður tæknideildar