Fara í efni
25.03.2026 Fréttir

Sýning á HOBB verkefninu yfir páskana

Deildu

Miðvikudaginn 25. mars afhentu nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur skýrslu með niðurstöðum rannsókna á grjótkrabba í Bolungarvík.
Hjalti Karlsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, tók við skýrslunni fyrir hönd stofnunarinnar.

Hjalti Karlsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, tekur við skýrslu nemenda í Grunnskóla Bolungarvíkur

Meginmarkmið HOBB er að hvetja og virkja grunnskólanemendur á öllum aldri með því að læra um hafið til að verða leiðtogar í hafinu. Verkefnið er hluti af HOBB (Hafið okkar – Blá Bolungarvík), sem unnið hefur verið að í vetur í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða og ProBlue. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu nemenda á hafinu og gefa þeim tækifæri til að stunda alvöru vísindastarfsemi.

Í verkefninu var sérstaklega skoðað hvort og hvar grjótkrabbi finnst í Bolungarvík. Settar voru krabbagildrur til að veiða krabba í höfninni í Bolungarvík og gagnasöfnun stóð yfir í október og nóvember 2025. Nemendur skráðu tegundir, stærð og kyn krabba, ásamt staðsetningu gildrana. 

Niðurstöðurnar sýna að mest veiddist í einni gildru í höfninni, sem nemendur telja geta tengst minni straumi á þeim stað. Alls veiddust þrjár tegundir krabba, grjótkrabbi, bogkrabbi og trjónukrabbi, auk annars sjávarlífs í meðafla, svo sem beitukóngs, marhnúta og þorsks.


Í tengslum við verkefnið unnu nemendur fjölbreytt verkefni. Eldri nemendur sáu um gagnasöfnun og úrvinnslu en yngri nemendur unnu meðal annars myndverk tengd hafinu. Þá bjuggu nemendur einnig til hlaðvarp þar sem þeir miðla þekkingu sinni á verkefninu. 

Nemendur útbjuggu meðal annars veggspjöld og annað efni sem sjá má á sýningunni

Sýningin var sett upp í íþróttahúsi Bolungarvíkur þar sem gestir geta skoðað niðurstöður verkefnisins. Hægt verður að skoða skýrslu sem nemendur útbjuggu, myndverk og tölfræðilegar niðurstöður frá nemendum.

Sýningin verður opin yfir páskana á opnunartíma íþróttahússins og öll eru velkomin að koma og skoða.