Fara í efni
24.08.2026 Tilkynningar, Auglýsingar

Hreinsunarátak í Bolungarvík

Deildu
default

Í dag hefst hreinsunarátak í Bolungarvík með það að markmiði að bæta ásýnd bæjarins. 

Sveitarfélagið hvetur íbúa, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila til að taka virkan þátt og nýta þau úrræði sem í boði verða:

  • Sekkir frá Hampiðjunni fyrir veiðarfæri (að línu undanskilinni) verða aðgengilegir á gámastöðinni í Bolungarvík. Kubbur mun sjá um flutning til Hampiðjunnar á Ísafirði þegar þeir fyllast
  • Málmar og partar munu staðsetja tvo brotajárnsgáma í bænum. Annar verður á geymslusvæðinu í Múrhúsalandi og hinn í portinu gengt gámastöðinni á Tjarnarkambi.
  • Vélar á ekki að setja í brotajárnsgámana ef hætta er á olíuleka, í þeim tilfellum er best að setja vélarnar til hliðar við gámana og tryggja að enginn leki geti orðið. Vélarnar verða svo teknar með gámunum
  • Ónýtum fiskikörum verður safnað saman í portinu gengt gámastöðinni og þau verða fjarlægð 21.september
  • Tekið er við öllum raftækjum eins og þvottavélum, þurrkurum, ísskápum, frystikistum o.fl. gámastöðinni á Tjarnarkambi án endurgjalds
  • Heilbrigðiseftirlitið mun merkja ökutæki á landsvæði kaupstaðarins sem þarf að fjarlægja. Eigendur hafa tvær vikur til að bregðast við og gera viðeigandi ráðstafanir
  • Átakið stendur yfir næstu vikur og lýkur 21. september. Að þeim tíma loknum áskilur Bolungarvíkurkaupstaður sér rétt til að fjarlægja tæki, búnað og aðra muni sem staðsettir eru utan samþykktra reita á geymslusvæðinu á kostnað eigenda, sem og annars staðar í bænum. Íbúar eru þó hvattir til að huga áfram að nærumhverfi sínu og leggja sitt af mörkum til að gera bæinn okkar allra snyrtilegan.

Að lokum minnum við á að hægt er að leigja reit á geymslusvæðinu fyrir tæki og/eða gáma. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á heimasíðu sveitarfélagsins 

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_7634.jpg?v=1787578202