Fara í efni
13.08.2026 Fréttir

Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið

Deildu

Strandveiðitímabilinu þetta árið lauk í gær og ljóst er að vertíðin markar tímamót í sögu Bolungarvíkurhafnar. Aldrei áður hafa jafn margir strandveiðibátar kosið að landa afla sínum í Bolungarvík og á þessari vertíð.

Alls lönduðu 118 strandveiðibátar þetta sumarið í Bolungarvík. Samanlagt komu þeir með tæplega 1.894 tonn af óslægðum afla í 2.699 löndunum. Mest var um löndun í júlí þegar 1.057 landanir voru skráðar. Í júní voru 732 landanir, í maí 574 og í ágúst 336. Stærsta einstaka löndun var 4.ágúst en þá komu 95 strandveiðibátar til hafnar.

Strandveiðivertíðin sýnir enn og aftur mikilvægi Bolungarvíkurhafnar fyrir smábátaútgerð og atvinnulíf svæðisins. Af 15.664 tonnum sem úthlutað var til strandveiða þetta árið var um 12,1% landað í Bolungarvík. Stefán Viðar Pétursson, yfirhafnarvörður, er að vonum ánægður með sumarið og þakkar þeim sem komu að yfirstaðinni vertíð „Bolungarvík hefur aldrei verið með jafn marga sem kosið hafa að leggja upp afla í höfninni. Allir sem komið hafa að veiðunum, skipstjórar, starfsfólk hafnarinnar og fiskmarkaðar FMS, allir þeir verktakar sem komu að viðhaldi og flutningabílstjórar sem flutt hafa aflann eiga þakkir skilið. Strandveiðin á heima í Bolungarvík.“

Það er óhætt að segja að það hafi verið líflegt á höfninni í sumar því þessar tölur innihalda ekki landanir annarra veiðarfæra. Þeim afla verða gerð skil í lok kvótatímabilsins.