Jóhanna Ósk Halldórsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Bolungarvíkur og mun hún hefja störf 1. ágúst næstkomandi. Jóhanna Ósk er fyrsta konan til að gegna embætti bæjarstjóra Bolungarvíkur og tekur hún við starfinu af Jóni Páli Hreinssyni sem verið hefur bæjarstjóri undanfarin 10 ár.
Undanfarin ár hefur Jóhanna starfað sem svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum og framkvæmdastjóri Sæferða, dótturfélags Eimskips. Hún býr yfir fjölbreyttri reynslu af rekstri og stjórnun, og þekkir vel til samfélagsins á Vestfjörðum. Jóhanna Ósk er gift Gunnari Þórissyni og saman eiga þau fjögur börn.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra var samþykktur með öllum atkvæðum bæjarfulltrúa á fundi bæjarstjórnar Bolungarvíkur í gær, 30. júní. Samkvæmt ráðningarsamningnum verða dagvinnulaun Jóhönnu Óskar 1.200.000 krónur á mánuði en auk þess er greitt stjórnunarálag sem er þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og hvað annað vinnuframlag sem til fellur utan dagvinnutíma. Samtals eru launin 1.810.416 auk þess sem hún fær greitt fyrir 1.000 km akstur sem jafngilda 150.000 krónum. Í heildina verða því mánaðarlaunin 1.960.416 krónur og eru þau á pari við laun fyrri bæjarstjóra og er þá ekki horft til þess að Jóhanna Ósk mun ekki þiggja laun fyrir setu á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs eða öðrum fundum fastanefnda Bolungarvíkurkaupstaðar. Ennfremur er gagnkvæmur uppsagnarfrestur á kjörtímabilinu þrír mánuðir og samkomulag er að við starfslok í lok kjörtímabilsins verði greidd laun á uppsagnarfresti í þrjá mánuði og að auki þriggja mánaða biðlaun og er það helmingi styttri tími biðlauna en hjá forvera hennar.
Jóhanna Ósk er boðin velkomin til starfa hjá sveitarfélaginu og óskum við henni velfarnaðar í starfi.
