Fyrri umræða um gjaldskrár og fjárhagsáætlun Bolungarvíkurkaupstaðar fyrir árið 2027 fór fram í bæjarstjórn síðastliðinn föstudag. Áhersla bæjarstjórnar er á að lækka álögur á íbúa og er stefnt að því að halda flestum gjaldskrám óbreyttum, auk þess sem nokkrar þeirra lækka milli ára.
Helstu breytingar fela í sér að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,50% í 0,48% og tímagjald í leikskóla lækkar um 20%. Þá verður gjaldfrjálst í sund fyrir öll börn og ungmenni undir 18 ára aldri og frístundastyrkur tvöfaldast, fer úr 40.000 kr. í 80.000 kr. á ári. Sorpgjöld hækka hins vegar um 10% vegna aukins kostnaðar við sorphirðu.
Einnig verða breytingar á álagningarreglum vatnsskatts og fráveitugjalda á íbúðarhúsnæði þannig að gjöldin verða ekki lengur reiknuð sem hlutfall af fasteignamati. Með breytingunum lækkar heildarálagning fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði um 22 milljónir króna miðað við fyrri álagningarreglur.
Samkvæmt fjárhagsáætlun nema heildartekjur bæjarins 2.373 milljónum króna og hækka um 85 milljónir milli ára. Laun og launatengd gjöld verða 1.182 milljónir, rekstrarafgangur er áætlaður 244 milljónir króna, sem er 114 milljóna hækkun frá fyrra ári, og veltufé frá rekstri verður 424 milljónir, einnig 114 milljónum hærra en árið áður.
Bæjarstjórn samþykkti að vísa gjaldskrám og fjárhagsáætlun ársins 2027 til síðari umræðu í desember. Enn geta orðið breytingar á áætluninni, meðal annars þar sem fjárhæðir vegna framkvæmda og lántöku liggja ekki endanlega fyrir.