Fara í efni
17.11.2026 Fréttir

Laust starf skippulags- og byggingafulltrúa

Deildu

Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir laust til umsóknar starf skipulags- og byggingafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi kemur að skipulagsmálum, byggingarmálum og uppbyggingu sveitarfélagsins í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, starfsfólk, íbúa og hagaðila.

Skipulags- og byggingafulltrúi gegnir mikilvægu hlutverki í áframhaldandi þróun Bolungarvíkur og ber ábyrgð á lögbundnum verkefnum á sviði mannvirkja og skipulags. Starfið felur meðal annars í sér afgreiðslu leyfismála, ráðgjöf til bæjarstjórnar og bæjarráðs, samskipti við íbúa, hönnuði og verktaka, auk eftirfylgni með skipulagsáætlunum og framkvæmdum.

Starfið er í 100% starfshlutfalli og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Umsóknarfrestur: 01.12.2026

Nánari upplýsingar og umsóknarferli eru hjá Hagvangi. 

Byggingafulltrúi – Bolungarvíkurkaupstaður – Hagvangur