Fara í efni
22.01.2026 Fréttir

Lífshlaupið

Deildu

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Forsaga Lífshlaupsins er að árið 2005 skipaði þáverandi menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu.
Starfshópurinn setti fram hugmyndir um mótun íþróttastefnu Íslands í skýrslunni, Íþróttavæðum Ísland, aukin þátttaka, breyttur lífsstíll.

Skráning fer fram á www.lifshlaupid.is. Hér má sjá leiðiðbeiningar á íslensku og leiðbeiningar á ensku.

Við bendum einnig á app Lífshlaupsins:

Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti landlæknis.

Lífshlaupið stendur fyrir:

  • Vinnustaðakeppni - 1.-28. febrúar
  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri - tvær vikur í febrúar
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri - tvær vikur í febrúar
  • Hreystihópar 60+ - 1.-28. febrúar

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 60+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.