Framkvæmdir við endurnýjun vatns-, fráveitu- og raflagna í Völusteinsstræti hafa staðið yfir í sumar og eru nú á lokastigi. Stefnt var að því að ljúka framkvæmdum þannig að hægt yrði að malbika götuna í vikunni. Hins vegar er ljóst að framkvæmdin er ekki komin á það stig að hægt verði að malbika þar sem teymi malbikunarstöðvarinnar færir sig um set í dag. Malbikun götunnar verður því í maí 2027 og hellulögn á gangstéttum sömuleiðis.
Tafir á verkinu eru minni háttar en verkþáttum hefur smám saman verið bætt við með það að markmiði að tryggja vandaða framkvæmd sem nýtist íbúum til langs tíma. Á næstu dögum verður gengið frá yfirborði götunnar þannig að hún verði örugg og aðgengileg í vetur. Einnig verður farið yfir og lagfært hellulagnir við heimkeyrslur þar sem þess er þörf svo þær valdi íbúum sem minnstum óþægindum yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er verið að skoða hvort unnt sé að nýta það fjármagn sem ætlað var í hellulögn á Völusteinsstræti til hellulagnar annars staðar í bænum, það skýrist á næstu dögum.
Við biðjum íbúa og aðra vegfarendur velvirðingar á þessum breytingum og þökkum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.
