Fara í efni
10.04.2026 Tilkynningar

Móttaka framboða - kosningar 2026

Deildu

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Bolungarvíkurkaupstað, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út föstudaginn 10. apríl 2026, kl. 12:00. Framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar áður en fyrrgreindur framboðsfrestur rennur út.

Yfirkjörstjórn mun þann 10. apríl hafa aðsetur í fundarherbergi bæjarskrifstofunnar í Bolungarvík, frá klukkan 10:00 til 12:00 og veita þar framboðsgögnum viðtöku. Öll framboð skulu tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar en klukkan 12:00 á hádegi þann dag.

 

Kjörstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar

Jóhann Hannibalsson, formaður 
Þóranna Þórarinsdóttir
Jenný Hólmsteinsdóttir