Rauði krossinn stendur fyrir æfungunni Skjól 26 þar sem sjálfboðaliðar æfa viðbragð við opnun fjöldahjálparstöðvar. Á meðan á æfingunni stendur verður opið hús og gestum og gangandi boðið að kynna sér starfið og þiggja veitingar. Opið hús í fjöldahjálparstöð, laugardaginn 3. október kl. 12 - 14 í Grunnskólanum í Bolungarvík.
Rauði krossinn við Djúp varð til við sameiningu deilda á Ísafirði, í Bolungarvík og í Súðavík. Starfið byggist alfarið á sjálfboðaliðum.
Hefur þú áhuga á að leggja okkur lið?
Það er einfalt að skrá sig sem sjálfboðliða á heimasíðunni www.raudikrossinn.is
