Laugadaginn næsta, 30. maí verður plokkdagur í Bolungarvík.
Nú styttist óðum í sjómannadaginn í Bolungarvík og því tilvalið að taka til hendinni hér í bænum. Við hvetjum öll til þess að taka þátt í að gera bæinn snyrtilegri.
Í tengslum við umhverfisátakið verða afklippur af trjám og runnum og annar garðaúrgangur fjarlægður garðaeigendum að kostnaðarlausu, mánudaginn 1. júni.
Fyrirtæki eru hvött til þess að taka til í kringum sín fyrirtæki.
