Mikil eftirvænting er fyrir almyrkvanum sem verður sýnilegur frá Vestfjörðum miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Bolafjall er einn af vinsælustu útsýnisstöðum svæðisins, 638 metrar yfir sjávarmáli og því tilvalinn til að fylgjast með þessum einstaka náttúruviðburði.
Af því tilefni mun West Travel bjóða upp á sérstakar rútuferðir á Bolafjall þann 12. ágúst.
Lokað verður fyrir alla almenna umferð bíla og gangandi um Bolafjallsveg frá morgni 12. ágúst.
West Travel sér um skipulag og framkvæmd ferðanna, þar á meðal bókanir og frekari upplýsingar um verð og brottfarartíma.
Áhugasamir geta kynnt sér ferðirnar nánar og bókað sæti á heimasíðu West Travel
Bolungarvíkurkaupstaður hvetur íbúa og gesti til að skipuleggja ferðir sínar tímanlega og kynna sér upplýsingar um almyrkvann.
Athugið að Bolungarvíkurkaupstaður stendur ekki fyrir ferðunum heldur sér West Travel um skipulag og framkvæmd þeirra.
