Bolungarvíkurkaupstaður hefur nú fengið afhent sólmyrkvagleraugu vegna almyrkvans á sólu sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026.
Íbúar Bolungarvíkur geta sótt gleraugun sér að kostnaðarlausu í Sundlaug Bolungarvíkur á opnunartíma meðan birgðir endast. Miðað er við að hægt verði að sækja fjölda gleraugna eftir fjölda íbúa á hverju lögheimili.
Mikilvægt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu við áhorf á sólina. Venjuleg sólgleraugu veita ekki fullnægjandi vörn og geta ekki verndað augu gegn skaðlegri geislun. Því er brýnt að þeir sem hyggjast fylgjast með myrkvanum noti einungis sérstök sólmyrkvagleraugu sem ætluð eru til slíkra nota.
Almyrkvinn 12. ágúst 2026 er einstakur viðburður og er búist við miklum fjölda gesta á Vestfjörðum af því tilefni. Bolungarvíkurkaupstaður vinnur nú að undirbúningi ásamt viðbragðsaðilum og öðrum samstarfsaðilum til að tryggja örugga og góða upplifun fyrir íbúa og gesti.
Nánari upplýsingar um sólmyrkvann og undirbúning vegna hans verða birtar á heimasíðu sveitarfélagsins þegar nær dregur.
