Fara í efni
26.10.2026 Fréttir

Syndum hefst 1. nóvember

Deildu

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2026. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja.

Átakið var fyrst haldið 2021 og þá syntu landsmenn samtals 11,6 hringi í kringum landið. Í fyrra voru syntir 14,7 hringir en markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með og uppgötva hvað sund er frábær alhliða hreyfing.
Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. 

Skráðu þig inn á syndum.is og skráðu þína sundvegalengd.
Ef þú átt notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnunni getur þú notað það.

Allir þátttakendur fara í pott og geta unnið vegleg verðlaun.

/cdn/media/Frettamyndir/Syndum-logo_lit-2.png?v=1793011138