Fræðslumála- og æskulýðsráð Bolungarvíkur óskar eftir tilnefningum til íþróttamanneskju ársins 2026. Tilnefna má íþróttafólk 18 ára og eldra sem á lögheimili í Bolungarvík eða æfir með íþróttafélagi í Bolungarvík. Stuttur rökstuðningur þarf að fylgja, til dæmis um árangur á árinu, ástundun og framkomu.
Skilafrestur er til og með 31. desember 2026. Tilnefningar eru sendar með rafrænu eyðublaði á vef Bolungarvíkur
Kjörinu verður lýst á hátíðarsamkomu í janúar 2027.
Nánari upplýsingar veitir Þorbergur Haraldsson, formaður fræðslumála- og æskulýðsráðs, thorbergur@bolungarvik.is.
Fræðslumála- og æskulýðsráð Bolungarvíkur
