Fara í efni
18.08.2026 Tilkynningar

Truflun á vatnsveitu á Holtastíg og Völusteinsstræti vegna framkvæmda

Deildu

Í dag verður vatnslaust á Holtastíg og Völusteinsstræti milli Hlíðastrætis og Traðarstígs vegna framkvæmda á svæðinu. Áætlað er að truflunin standi yfir í um tvær klukkustundir, eða til um klukkan 19:00.

Athygli er vakin á því að önnur hús í nágrenni framkvæmdasvæðisins gætu einnig orðið fyrir tímabundnum áhrifum á vatnsveitu meðan á framkvæmdunum stendur.

Unnið er að því að ljúka verkinu eins fljótt og auðið er og koma vatnsveitunni aftur í eðlilegt horf. Íbúar og aðrir sem verða fyrir áhrifum eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.