Fara í efni
04.09.2026 Tilkynningar

Undirbúningur fyrir malbikun á Völusteinsstræti

Deildu

Unnið verður að undirbúningi fyrir malbikun á Völusteinsstræti nú um helgina. Til að verkið gangi sem best og tryggja öryggi allra vegfarenda þarf að loka götunni tímabundið frá og með deginum í dag og fram yfir mánudag, en áætlað er að malbika á mánudaginn.

Íbúar og aðrir sem eiga erindi á svæðið eru vinsamlegast beðnir um að gera ráðstafanir varðandi ökutæki sín og leggja þeim annars staðar á meðan framkvæmdum stendur svo þeir lokist ekki inni á bílastæðum eða á Holtastíg. Það mun einnig auðvelda vinnu verktaka og stuðla að því að hægt verði að ljúka undirbúningi og malbikun eins fljótt og auðið er. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og eru íbúar jafnframt beðnir um að sýna framkvæmdunum skilning og aðgát á svæðinu.

Bolungarvíkurkaupstaður þakkar íbúum fyrir samstarfið og skilninginn.

Framkvæmdasvæðið er Völusteinsstræti frá gatnamótum Traðarstígs og alveg upp að gatnamótum við Bakkastíg.