Fara í efni
08.04.2026 Fréttir

Ungmennaþing Barnaheilla um kynferðisofbeldi í nánum samböndum

Deildu

Sjötta og síðasta ungmennaþing Barnaheilla verður haldið miðvikudaginn 8. apríl í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, kl. 10:30-13:30, þar sem fjallað verður um ofbeldi í nánum samböndum ungs fólks.

Þátttakendur verða tæplega 40 krakkar úr 10. bekk grunnskólanna á Ísafirði, Suðureyri, Þingeyri og í Bolungarvík, auk nemenda úr Menntaskólanum á Ísafirði.

Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneyti til að halda ungmennaþing á sex stöðum á landinu nú í byrjun árs. Fyrsta þingið var haldið á Suðurnesjum í febrúar, og í mars voru ungmennaþing haldin í Hafnarfirði, Akureyri, Egilsstöðum, og á Selfossi. Yfirferð Barnaheilla um landið lýkur svo með þingi ungmenna á norðanverðum Vestfjörðum.

Þema þinganna er kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga, og er markmiðið að fá innsýn í upplifun og viðhorf unga fólksins og hverju þau vilja koma á framfæri varðandi ofbeldi í nánum samböndum.

Barnaheill vilja kanna hvort ungmenni þekki einkenni óheilbrigðra sambanda og ofbeldis, og viti hvert þau geta leitað eftir aðstoð. Einnig verður leitast við að heyra hvaða mögulegar lausnir þau sjái sjálf til að minnka slíkt ofbeldi.

Það er mikill lærdómur falinn í þátttöku í ungmennaþingi, og dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Barnaheill munu greina upplýsingar frá þingunum sex, sem verða svo sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks með von um að þær nýtist til að byggja upp enn betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna.

Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl, þar sem fagaðilum, stjórnvöldum og fulltrúum af öllum ungmennaþingunum verður boðið að taka þátt í umræðum.

Málefnið er afar mikilvægt því of mikið er um kynferðisofbeldi gegn ungu fólki og milli ungs fólks samkvæmt þeim skýrslum sem liggja fyrir:

  • Ársskýrsla Stígamóta 2024: 68.6% af þeim sem komu til Stígamóta í fyrsta sinn voru undir 18 ára þegar brotið átti sér stað og 34.6% undir 10 ára.
  • Tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu árið 2025 voru 133 varðandi kynferðisbrot gegn barni og 51 um barnaníð (myndefni).
  • Niðurstöður úr Íslensku Æskulýðsrannsókninni 2025 þar sem rúmlega 600 ungmenni í 8.-10. bekk sögðu annan ungling hafa haft við þau samfarir eða munnmök gegn vilja þeirra.

Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Sólveigu Ólafsdóttur kynningarstjóra Barnaheilla í s. 893-9912.