Fara í efni
05.10.2026 Fréttir

Ungt fólk og bæjarstjórar ræddu framtíð samfélagsins

Deildu

Hvernig sa/cdn/media/Frettamyndir/Inngangur-2.png?v=1791191245mfélag viljum við skapa saman?

Þessi spurning verður í brennidepli laugardaginn 10. október þegar landsverkefnið Samtal fer fram víða um land. Á norðanverðum Vestfjörðum fer samtalið fram í Menntaskólanum á Ísafirði, þar sem ungt fólk leiðir samtöl fólks á öllum aldri um framtíð samfélagsins.

Í aðdraganda verkefnisins bauð nemendafélag Menntaskólans á Ísafirði Jóhönnu Ósk Halldórsdóttur, bæjarstjóra Bolungarvíkur, og Gylfa Ólafssyni, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, til samtals við stjórn nemendafélagsins föstudaginn 2. október. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi þess að ungt fólk taki virkan þátt í samfélagsumræðunni og hafi tækifæri til að hafa áhrif á þróun síns nærsamfélags.

Samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina. Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari þess.

Samtalið fer fram frá kl. 14:00 til 17:00 laugardaginn 10. október. Öll 16 ára og eldri geta tekið þátt og þátttaka er ókeypis.

Bolvíkingar á öllum aldri eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í samtalinu.

Nánari upplýsingar og skráning eru á talasaman.is.

Sköpum framtíðina saman.