Það er von á breytingum í veðri í Bolungarvík í dag og næstu daga. Fyrst má búast við rigningu og hálku, sem svo mun breytast í talsverða snjókomu. Íbúar eru hvattir til að fara varlega og gæta að sínu nánasta umhverfi.
Bæjarstarfsmenn og verktaki bæjarins verða á vaktinni og bregðast við eins þörf er á. En eins og gefur að skilja verður erfitt að bregðast við hálku á öllum götum bæjarins samtímis og því er mikilvægt að fólk gæti að aðstæðum og sýni aðgát.

