Bæjarráð Bolungarvíkur tók á síðasta fundi sínum fyrir tilkynningu frá Vífil Ingimarssyni, framkvæmdastjóra nettó, prís og kjörbúðarinnar, þar sem greint var frá því að útsala yrði haldin í Kjörbúðinni þann 11. maí og að versluninni yrði lokað í kjölfarið.
Ákvörðun stjórnenda Kjörbúðarinnar veldur bæjarráði Bolungarvíkur vonbrigðum. Það er metnaðarleysi að bregðast ekki við aðstæðum í rekstri og gera viðeigandi úrbætur með hagsmuni viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Það vekur upp spurningar um stefnu og framtíðarsýn fyrirtækisins um þjónustu þeirra við alla landsmenn og þá sérstaklega samfélög á landsbyggðinni.
"Hvaða búð verður lokað næst?"
Þrátt fyrir tíðindin leggur bæjarráð áherslu á að lokun verslunarinnar skilgreini ekki samfélagið í Bolungarvík og að bæjarfélagið standi sterkt áfram. Jafnframt hefur bæjarráð falið bæjarstjóra að færa öll viðskipti sveitarfélagsins úr Kjörbúðinni yfir í Bjarnabúð þegar í stað og hvetur bæjarbúa til að gera slíkt hið sama, hvort sem heldur er í dag eða á útsölunni umræddu:
"Það er ekki þess virði að kaupa niðursoðna tómata á útsölu"
Bæjarráð segir mikilvægt að styðja við þá þjónustu sem áfram verður til staðar í samfélaginu og beina viðskiptum sínum þangað.

