Fara í efni
27.07.2026 Fréttir, Tilkynningar

Vinna við gatnamót Holtastígs og Völusteinsstrætis

Deildu

Framkvæmdir við gatnagerð í Völusteinsstræti standa yfir og færist framkvæmdasvæðið nú ofar í götuna. Á morgun mun verktaki vinna yfir gatnamót Holtastígs, sem mun valda tímabundinni truflun á aðgengi að götunni á milli kl. 10:00 og 16:00.

Sem stendur er hægt að aka inn á Holtastíg að norðanverðu en unnið er að breytingum þannig að hægt verði að aka inn á götuna að sunnanverðu. Verktaki leitast við að ljúka þessum hluta framkvæmdanna eins fljótt og auðið er svo að aðgengi inn og út af Holtastíg verði komið í eðlilegt horf sem fyrst.

Framkvæmdasvæðið í Völusteinsstræti mun á næstu dögum færast að gatnamótum Völusteinsstrætis og Hlíðarstrætis. Þegar sá hluti verksins verður opnaður mun umferðarfyrirkomulag á svæðinu breytast. Þá verður Völusteinsstræti botngata til suðurs frá Hlíðarvegi og Hlíðarstræti botngata frá Þjóðólfsvegi.

Við biðjum íbúa og aðra vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir kunna að valda og þökkum fyrir sýndan skilning meðan á verkinu stendur.