Bolungarvíkurkaupstaður starfrækir vinnuskóla fyrir unglinga fædda á árunum 2009–2012 (nemendur í 8.–10. bekk og 1. bekk menntaskóla) frá 8. júní til 10. júlí 2026.
Vinnuskólinn er ætlaður unglingum með lögheimili í Bolungarvík (eða ef annað foreldri er með lögheimili í Bolungarvík).
Vinnuskólinn fær úthlutað fjölbreyttum verkefnum frá Bolungarvíkurkaupstað. Meðal verkefna má nefna:
- Sundlaug og tjaldsvæði
- Áhaldahús
- Aðstoð í leikskóla
- Sumarskóli grunnskólans
- Leikskóli
Umsóknum um þátttöku í vinnuskólanum skal skila til bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar eigi síðar en 1. júní 2026.
