Menntastefna Bolungarvíkur 2026-2031
Í Bolungarvík eru starfandi leikskólinn Glaðheimar, tónlistarskóli Bolungarvíkur og Grunnskóli Bolungarvíkur sem allir eru í göngufæri. Innangengt er á milli grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar Árbæjar. Í grunnskólanum gefst nemendum á yngsta stigi kostur á lengdri viðveru og samfelldum skóladegi. Félagsmiðstöðin Tópaz er einnig til húsa í grunnskólanum.
Inngangur
Skólastefna Bolungarvíkur frá árinu 2020 hefur verið endurskoðuð og heitir nú menntastefna Bolungarvíkur. Samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla skal hvert sveitarfélag setja sér stefnu um skólahald og nær menntastefnan yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Auk þess er hún leiðarvísir fyrir öll þau sem starfa við menntun og uppeldi í sveitarfélaginu. Í Bolungarvík eru starfandi Leikskólinn Glaðheimar, Tónlistarskóli Bolungarvíkur og Grunnskóli Bolungarvíkur þar sem jafnframt er 5 ára leikskóladeildin Malir. Í grunnskólanum gefst nemendum á yngsta stigi kostur á lengdri viðveru og samfelldum skóladegi. Félagsmiðstöðin Tópaz er staðsett í Hrafnakletti, félagshúsnæði Ungmennafélags Bolungarvíkur. Samráð var haft við skólasamfélagið við endurskoðunina og einnig gafst öllum íbúum Bolungarvíkur kostur á að hafa áhrif á íbúafundi. Fræðslumálaráð hélt utan um endurskoðunina, ásamt verkefnastjóra frá Ásgarði skólaráðgjöf.
Framtíðarsýn
Mikilvægt er að mennta- og uppeldisstarf í Bolungarvík þróist áfram sem framsækið og faglegt skólasamfélag þar sem samfélagið stendur saman og styður mikilvægt starf með börnum og ungmennum. Með fagmennsku, samvinnu og víðsýni mætum við fjölbreyttum þörfum skólasamfélagsins og stuðlum að framförum. Stöðug fagleg þróun og stuðningur við umbótastarf eru lykilforsendur þess að mennta- og uppeldisstarf geti vaxið, dafnað og tekið mið af breyttum áskorunum og tækifærum samfélagsins. Framtíðarsýnin tryggir að starfið sé í takt við samtímann og undirbúi börn og ungmenni vel fyrir framtíðina.
Meginmarkmið
Samvinna og faglegt starf
Mennta- og uppeldisstarf byggist á markvissu samstarfi skóla og skólastiga og faglegu samstarfi í lærdómssamfélagi innan sem utan sveitarfélagsins. Samstarf við foreldra/forsjáraðila skal vera markvisst, gagnkvæmt og styðja við nám og félagsþátttöku barna.
Jöfn tækifæri og inngilding
Tryggt skal að allir nemendur hafi jöfn tækifæri til náms, óháð tungumáli, uppruna eða aðstæðum, með áherslu á markvissa íslenskukennslu og virðingu fyrir margbreytileika.
Persónumiðað nám og vellíðan
Leikur, nám og kennsla skal taka mið af þroska, styrkleikum og áhuga hvers barns og stuðla að öryggi, jákvæðum aga og vellíðan í skapandi námsumhverfi.
Framtíðarhæfni og nýsköpun
Mennta- og uppeldisstarf skal stuðla að gagnrýnni hugsun, stafrænni og skapandi færni, og tengjast atvinnulífi og félagasamtökum með verkefnum sem endurspegla raunveruleg viðfangsefni samfélagsins. Nemendur læri gildi þess að lifa í sátt við umhverfið og auðlindir sem tengir skólastarf við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Samþætt þjónusta og snemmtækur stuðningur
Veita skal samþætta og stigskipta þjónustu í þágu farsældar barna og tryggja snemmtækan stuðning við nemendur og fjölskyldur eftir þörfum.
Fagmennska, starfsþróun og innra mat
Allt starf með börnum og ungmennum skal byggja á grunnþáttum menntunar (læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, sköpun), gildum menntastefnunnar og kerfisbundnu innra mati sem styður við starfsþróun, gæðastarf og umbætur.
Gildi
Með því að sveitarfélagið setji markið hátt og styðji við framkvæmd framúrskarandi mennta- og uppeldisstarfs er sveitarfélagið ekki aðeins að sinna lögbundnu hlutverki heldur að gera kröfur um fagmennsku, víðsýni, samvinnu og árangur. Gildin eru áherslur í mennta- og uppeldisstarfi í Bolungarvík:
- Fagmennska þar sem náms- og kennslufræðilegt starf byggir á aðalnámskrám, lögum og reglugerðum en á sama tíma á nýjustu menntarannsóknum. Áhersla á gæðastarf, kennslu í fremstu röð og stöðugar umbætur sem hafa augljósan tilgang.
- Víðsýni og gæfa til þess að sjá fjársjóðinn sem felst í fjölbreytileikanum, draga fram sérkenni samfélagsins og hjálpast að við að skilja heiminn með augum hvers annars. Þörfum allra sé mætt og fundnar leiðir til þess að allir hafi aðgang að námi við hæfi og áskorunum sem jafna tækifæri nemenda.
- Samvinna er augljós og sjálfsögð á milli stofnana, atvinnulífs og skóla. Tilgangurinn er að læra hvert af öðru og nýta tækifærin í umhverfi skólanna til að auðga starfið með börnunum. Þarfir einstaklinganna hafðar að leiðarljósi.
- Árangur í námi með áherslu á framfarir. Samvinna við foreldra og lýðræðisleg aðkoma nemenda að skólastarfinu eykur árangur.
Leikur, nám og kennsla
Í Bolungarvík er fjölbreytileika fagnað og nemendur hafa jafnt aðgengi að skapandi mennta- og uppeldisstarfi sem tekur mið af áhuga þeirra og fyrri þekkingu. Í öruggu og hvetjandi námsumhverfi sem er í senn, traust, faglegt og framsækið hafa nemendur svigrúm til að vaxa og dafna á eigin forsendum. Markmiðið er að allir nemendur öðlist sjálfstraust til þess að takast á við síbreytileg og krefjandi verkefni í daglegu lífi og hafi þor til að leggja sitt af mörkum sem virkir þjóðfélagsþegnar í lýðræðissamfélagi.
Áhersla er lögð á persónumiðað nám og komið er til móts við áhugasvið nemenda, einnig í heimanámi. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og skapandi og áhersla er lögð á sjálfsprottinn leik sem kennsluaðferð enda er leikurinn leið barna til að rannsaka og uppgötva heiminn, þroskast og dafna. Lögð er áhersla á fjölbreytt, gagnsætt og leiðbeinandi námsmat sem styður nemendur í að meta eigin framfarir og axla stigvaxandi ábyrgð á námi sínu. Námsmatið metur hæfni, styrkleika og getu hvers nemanda og hvetur til virkrar þátttöku. Skipulag mennta- og uppeldisstarfs skal taka mið af þörfum, getu og hæfni hvers og eins með áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð, samvinnu og sjálfstæði nemenda á stigvaxandi hátt. Nemendum skulu bjóðast krefjandi og skapandi verkefni með raunverulegum úrlausnarefnum í samstarfi við nærsamfélagið.
Áhersla er lögð á góða lestrarfærni og læsi í víðum skilningi sem miðar að því að nemendur geti lesið sér til gagns og gamans. Læsi veitir hæfni til að skilja tilveruna og umhverfið sem við lifum í. Í stafrænum heimi nútímans, þar sem gervigreind er áberandi, er mikilvægt að nemendur tileinki sér gagnrýni gagnvart þeim upplýsingum sem settar eru fram og nýti þær á ábyrgan hátt.
Hlutverk
Hlutverk sveitarfélagsins gagnvart skólastarfi í Bolungarvík er að stuðla að alhliða þroska og velferð allra barna í sveitarfélaginu og tryggja að farið sé að lögum og reglugerðum í samvinnu við heimilin. Mikilvægt er að öll börn öðlist jafnan rétt til náms og með skólagöngu sé tryggt að börn eigi möguleika á að feta menntaveginn á eigin forsendum og í anda Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Til þess að möguleikar mennta- og uppeldisstarfs í Bolungarvík séu sem bestir þarf sveitarfélagið að styðja við starfsþróun starfsfólks, tryggja stöðugleika í sérfræðiþjónustu og góða aðstöðu til leiks, náms og kennslu. Einnig er mikilvægt að sveitarfélagið styðji við og auðveldi samvinnu og samskipti skólanna við atvinnulíf og stofnanir nær og fjær.
Ábyrgð og innleiðing
Sveitarfélagið styður markvisst við innleiðingu menntastefnunnar og tryggir að hún endurspeglist skýrt í stefnum skólanna. Skólastjórar bera ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd stefnunnar og forgangsröðun aðgerða. Staða hvers skóla gagnvart stefnuþáttum menntastefnunnar er birt í opnum og aðgengilegum skýrslum um innra mat í lok hvers skólaárs. Fræðslumálaráð ber ábyrgð á mati og eftirliti með framgangi stefnunnar í umboði bæjarstjórnar. Menntastefnan gildir til ársins 2031 en skal endurskoðuð fyrr ef ástæða er til. Eftirfylgni og endurskoðun stefnunnar verður í höndum fræðslumálaráðs sem jafnframt fylgir innleiðingu hennar eftir.
Samþykkt í fræðslumálaráði 8. janúar 2026
Menntastefna Bolungarvíkur © 2026