Farsældarlöggjöf Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tekið gildi.
Barnið verður hjartað í kerfinu Ný lög tryggja að börn og fjölskyldur þeirra falli ekki á milli kerfa og verði ekki send á eigin ábyrgð milli þjónustuaðila innan sveitarfélaga og ríkisstofnana. Hér getur þú kynnt þér breytingarnar nánar.
Í Bolungarvík er unnið markvisst að því að tryggja börnum snemmtækan stuðning, samfellda þjónustu og farsæld í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
Markmið okkar er að tryggja að hagsmunir barna séu ávallt hafðir að leiðarljósi og að börn og foreldrar fái viðeigandi stuðning á réttum tíma.
Þrjú þjónustustig farsældarkerfisins
Fyrsta stigs þjónusta
Snemmtækur stuðningur og stoðþjónusta
Fyrsta stigs þjónusta er almennur og snemmtækur stuðningur sem veittur er innan leik- og grunnskóla.
Dæmi um fyrsta stigs þjónustu:
Skimanir og mat á grunnfærni.
Stoðþjónusta innan skóla.
Aðlögun námsumhverfis.
Tímabundinn stuðningur við nám og líðan.
Stoðteymi skóla fylgjast með framvindu og meta hvort frekari stuðningur sé nauðsynlegur.
Annars stigs þjónusta
Markviss og samþætt þjónusta
Ef þörf barns reynist flóknari er mál tekið til umfjöllunar hjá nemendaverndarráði/fagteymi.
Þá er:
Skipaður málastjóri.
Sett saman stuðningsteymi.
Unnin skrifleg stuðningsáætlun í samstarfi við foreldra og barn.
Markmið er að samræma þjónustu og tryggja skýra ábyrgð allra sem koma að málinu.
Þriðja stigs þjónusta
Sérhæfður stuðningur
Þriðja stigs þjónusta kemur til þegar þörf er á sérhæfðum úrræðum eða þegar farsæld barns er í verulegri hættu.
Dæmi um slíka þjónustu eru:
Barnaverndarþjónusta.
Þjónusta við börn með fötlun.
Geðheilbrigðisþjónusta.
Önnur sérhæfð úrræði.
Stuðningsáætlanir eru reglulega endurskoðaðar og samvinna milli þjónustuaðila tryggð.
1. Skimanir og eftirfylgd
Skólar fylgjast með námi, líðan og þroska barna með reglubundnum skimunum og mati.
2. Stoðteymi skóla
Stoðteymi greinir upplýsingar og leggur til viðeigandi stuðning innan skólans.
3. Mat á árangri
Framfarir eru metnar og stuðningur aðlagaður eftir þörfum.
4. Nemendaverndarráð eða fagteymi
Ef þörf er á frekari stuðningi tekur fagteymi/nemendaverndarráð málið til umfjöllunar.
5. Málastjóri og stuðningsteymi
Skipulagður er samþættur stuðningur með þátttöku foreldra og barns.
6. Sérhæfð þjónusta
Tengiliðir
Öll börn og foreldrar hafa aðgang að tengiliði farsældar í leik- grunn- og framhaldsskólum og hjá heilsugæslu. Tengiliðir hafa yfirsýn yfir þjónustkerfið og aðstoða börn og foreldra við að fá rétta þjónustu með því að leiðbeina þeim í gegnum ferlið.
Tengiliðir starfa í nærumhverfi barnsins, t.d. leik- eða grunnskóla, heilsugæslu eða félagsþjónustu.
Hlutverk málstjóra er að stýra samþættri þjónustu á öðru og þriðja þjónustustigi. Málstjóri er starfsmaður félagsþjónustu en vinnur náið með starfsfólki skóla, heilsugæslu og öðrum þjónustuveitendum barna.
Málstjóri veitir ráðgjöf, tryggir aðgang að mati og greiningu, og stýrir stuðningsteymi sem vinnur að samþættri þjónustu í þágu barnsins. Málstjóri hefur hagsmuni barnsins að leiðarljósi og vinnur náið með foreldrum og barninu að gerð og framkvæmd stuðningsáætlunar.