Fara í efni

Mugison heldur einstaka tónleika á Bolafjalli

Dags
25. júlí
Kl.
15:00 - 16:00
Staðsetning
Bolafjall
"Fuglarnir syngja bakraddir í klettunum, uppstreymið lætur hárið blakta og útsýnið gerir okkur kjaftstopp. Snilld með smjöri."
Deildu

Mugison mun halda einstaka útitónleika á einum fallegasta útsýnisstað svæðisins, á Bolafjalli.

Mugison hvetur gesti til að mæta vel undirbúna, með útilegustól eða koll til að sitja á.

„Skiptir engu hvort það verður sólskin eða skýjað – þetta verður geggjað,“ 

segir Mugison, sem hlakkar til að taka á móti gestum á þessum einstöku tónleikum.

Miðasala er hafin og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér miða í tæka tíð.

Miðar á Tix

Sjá viðburð á Facebook hér