Fara í efni
Laus störf

Tómstundafulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar

Umsóknarfrestur: 27.04.2026
Fullt starf

Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir eftir að ráða tómstundafulltrúa í 100% starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að leiða tómstundastarf fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í starfsemi ungs fólks í samfélaginu.
Bolungarvík er vaxandi sveitarfélag sem hefur metnað til að byggja upp framúrskarandi þjónustu fyrir alla samfélagshópa. Tómstundastarf fyrir öll er hluti af þeirri vegferð og mun nýtt starf tómstundafulltrúa vera lykilþáttur í því verkefni.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með skipulagningu tómstundastarfs hjá ungmennum í Bolungarvík
  • Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Tópaz
  • Skipuleggja og fylgja eftir tómstundastarfi fyrir aldurshópinn 16 til 25 ára
  • Skipuleggja og sinna sértækum hópaúrræðum eftir þörfum
  • Forstöðumaður vinnuskóla
  • Umsjón með starfsemi Ungmennaráðs
  • · Vinna að stefnumörkun sveitarfélagsins á sviði tómstundamála og hafa frumkvæði að nýjum verkefnum og aðgerðum til að styrkja tómstundastarf í sveitarfélaginu
  • Sinna öðrum verkefnum sem kunna að koma upp á sviði tómstundamála.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði, svo sem á sviði kennslu eða uppeldisfræða, íþrótta- og heilsufræða, tómstunda- og félagsmálafræða eða annað sambærilegt nám
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Frumkvæði og framkvæmdagleði
  • Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
  • Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund við alla aldurshópa
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög

Starfið felur í sér sveigjanlegan vinnutíma í samræmi við opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar Tópaz og verkefni tengd tómstundastarfi og ungmennaráði.

Umsóknum skal skilað ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi á bolungarvik@bolungarvik.is merkt „Umsókn – tómstundafulltrúi“.


Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri eða staðgengill hans í jonpall@bolungarvik.is og kristinngauti@bolungarvik.is.

Jón Páll Hreinsson
Bæjarstjóri
Kristinn Gauti Einarsson
Fjármála- og skrifstofustjóri