Fara í efni
Laus störf

Hlutastarf í list og verkgreinum

Umsóknarfrestur: 18.04.2026
Fullt starf

Grunnskóli Bolungarvíkur óskar eftir starfsmanni í hlutastarf í list og verkgreinum (smíðar, dans og tónmennt)

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 börn á aldrinum fimm til sextán ára. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur mið af þroska og hæfni nemenda. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og samvinnu kennara. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsmanna og foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annars list og verkgreinar á yngsta og miðstigi
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við forráðamenn og fagaðila
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Áhugi á að starfa með börnum og unglingum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstafshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnu
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Skilyrði við ráðningur er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og ásamt leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsókn sendist á halldoras@bolungarvik.is Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir, skólastjóri.

Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir
Skólastjóri