Fara í efni
29.06.2026 Tilkynningar

Bílastæði við Aðalstræti

Deildu

Markaðshelgin verður núna um komandi helgi í Bolungarvík, 3-5 júlí.

Líkt og venja er verður Aðalstræti lokað milli Skólastígs og Vitastígs um helgina á meðan hátíðarhöld standa yfir. Lokað verður fyrir bílaumferð og bílastæði frá kl. 18:00 föstudaginn 3. júlí þar til klukkan 20:00 laugardaginn 4. júlí.  

Bílastæðin við Aðalstræti verða girt af 1.-3. júlí til þess að koma í veg fyrir að bílar verði geymdir þar yfir helgina.  

Gatan verður sópuð föstudaginn 3. Júlí.  

Bolungarvíkurkaupstaður biður íbúa og fyrirtæki við Aðalstræti 21 velvirðingar á þessu inngripi meðan á hátíðinni stendur. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar bendum við ykkur á að senda skilaboð á osvor@bolungarvik.is

Fyrirfram þakkir 
Bolungarvíkurkaupstaður

Götulokunin er með leyfi frá Lögreglustjóra Vestfjarða.