Fara í efni
12.08.2026 Fréttir, Tilkynningar

Vegurinn á Bolafjall lokar almennri umferð kl. 11:00 á sólmyrkvadegi

Deildu

Vegurinn á Bolafjall verður lokaður allri almennri umferð miðvikudaginn 12. ágúst 2026 frá kl. 11:00. Lokunin tekur til allra ökutækja og gangandi vegfarenda. Markmið lokunarinnar er að tryggja öryggi gesta og greiða framkvæmd skipulagðra rútuferða á svæðið vegna almyrkvans. 

Gestir sem hyggjast upplifa almyrkvann á Bolafjalli eru hvattir til að nýta sér skipulagðar rútuferðir West Travel frá Bolungarvík.

Áður en vegi verður lokað verður svæðið á Bolafjalli tæmt. Ef gestir eru enn uppi á fjallinu þegar nær dregur lokun verða þeir beðnir um að yfirgefa svæðið áður en lokunin tekur gildi.

Bolungarvíkurkaupstaður biður gesti um að virða lokunina og fylgja leiðbeiningum starfsfólks, lögreglu og viðbragðsaðila. Með því er stuðlað að öruggri og skipulagðri umferð.

Nánari upplýsingar um almyrkvann má finna hér. 

Upplýsingar um rútuferðir eru á heimasíðu West Travel. 

Athugið: Ekki verður heimilt að aka eða ganga upp veginn eftir kl. 11:00 og verður svæðið eingöngu aðgengilegt þeim sem nýta sér skipulagðar ferðir á vegum West Travel.