Flestir íbúar á vestfjörðum eiga því láni að fagna og búa við þau forréttindi að besti staðurinn til að upplifa almyrkvann er frá heimilum sínum eða í göngufæri í nærumhverfi sínu.
Með því að velja hentugan stað við eða nærri heimili sínu getur hver og einn lagt sitt af mörkum við að tryggja almannaöryggi og draga úr umferð. Sævar Helgi Bragason eða Stjörnu-Sævar horfir til að mynda á almyrkvann frá heimili sínu á höfuðborgarsvæðinu. Skoða má á gagnvirku korti hvernig og hversu lengi almyrkvinn sést frá heimili fólks.
Stjórnvöld hvetja fólk til að njóta þessa sögulega atburðar heima hjá sér eða í sínu nærumhverfi og að sleppa því að ferðast um á bíl nema í nauðsyn.
Gert er ráð fyrir auknu álagi á samgöngur, viðkvæm náttúrusvæði, innviði og viðbragðsaðila á vestanverðu landinu þar sem almyrkvinn verður sýnilegur. Búast má við töluverðum umferðarþunga dagana fyrir og eftir almyrkvann.
Bolungarvíkurkaupstaður hefur útvegað vottuð sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa. Hægt er að nálgast gleraugun í Sundlaug Bolungarvíkur á opnunartíma.
Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstakar síur sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun. Nota þarf gleraugun í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
The Bolafjall Road will be closed to all public vehicle and pedestrian traffic from the morning of August 12.
Rútuferðir á Bolafjall
Vegna mikils áhuga á almyrkvanum verða í boði sérstakar rútuferðir á Bolafjall á vegum West Travel. Bolafjall er einn af þeim stöðum sem margir líta til sem einstakan útsýnisstað til að upplifa almyrkvann.
Nánari upplýsingar um ferðir, verð og bókanir má finna á heimasíðu West Travel.
Athugið að Bolungarvíkurkaupstaður stendur ekki fyrir ferðunum heldur sér West Travel um skipulag og framkvæmd þeirra.
Almyrkvinn í Bolungarvík
Í Bolungarvík hefst deildarmyrkvi um kl. 16:43. Almyrkvi hefst um kl. 17:44, nær hámarki um kl. 17:45 og lýkur um kl. 17:46. Deildarmyrkva lýkur um kl. 18:45. Nákvæm tímasetning getur verið breytileg um nokkrar sekúndur eftir staðsetningu innan sveitarfélagsins.
Á gagnvirku korti má sjá hvar almyrkvinn verður sýnilegur og hversu lengi hann varir eftir staðsetningu.
Kort: Andreas Dill & Sævar Helgi Bragason fyrir solmyrkvi2026.is & icelandatnight.is
Safnstaðir
Bolafjall
Tjaldsvæði Bolungarvíkur
Bolafjall er einn vinsælasti útsýnisstaðurinn á svæðinu til að fylgjast með almyrkvanum. Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðir sínar tímanlega og fylgja öllum leiðbeiningum á svæðinu. Rútuferðir á Bolafjall verða í boði hjá West Travel. Nánari upplýsingar hér.
Tjaldsvæðið við Sundlaug Bolungarvíkur er skilgreindur safnstaður fyrir þá sem vilja fylgjast með almyrkvanum. Þar er góð aðstaða fyrir gesti, m.a. salerni, snyrtiaðstaða og önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Gott að hafa í huga
Reikna má með auknum fjölda gesta í Bolungarvík dagana fyrir og á sólmyrkvadegi.
Hyggist þú ferðast til að fylgjast með almyrkvanum er mikilvægt að skipuleggja ferðina tímanlega, kynna sér áfangastað og gera ráð fyrir auknu álagi á vegakerfi og þjónustu.
Leggið ökutækjum aðeins á merktum stæðum og fylgið leiðbeiningum lögreglu, almannavarna og annarra viðbragðsaðila.
Takið með vatn, nesti, nauðsynleg lyf, hlýjan og viðeigandi fatnað og gætið þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á ökutækjum.
Farið varlega í umferðinni, hafið hugann við veginn og virðið tímabundnar lokanir, umferðarstýringar og aðrar takmarkanir sem kunna að vera í gildi.
Virðið náttúruna, sýnið umhverfinu tillitssemi og skiljið ekki eftir rusl.
Fylgist með veðurspám og opinberum upplýsingum þegar nær dregur almyrkvanum.
Ekki gleyma sólarvörn ef veðrið ætlar að leika við okkur
Algengar spurningar
Nota þarf vottuð sólmyrkvagleraugu allan tímann meðan deildarmyrkvi stendur yfir. Aðeins þegar tunglið hylur sólina að fullu í almyrkva má taka gleraugun af í stutta stund.
VARÚÐ: Horfðu aldrei á deildarmyrkvaða eða ómyrkvaða sól í gegnum myndavélalinsu, handsjónauka, sjónauka eða önnur sjóntæki, jafnvel með sólmyrkvagleraugu.
Ekki er nauðsynlegt að himinninn sé alveg heiðskír til að fylgjast með sólmyrkvanum. Háskýjaslæða truflar ekki en meira ef það er rigning og þungbúið. Eftir sem áður verður hægt að upplifa nokkuð einstakt: Að myrkur skellur á í eina til tvær mínútur.
Ef það verður lágskýjað mælum við með að tryggja sér miða uppá Bolafjall, sem er í 638 metra hæð yfir sjávarmáli.
Fylgist með upplýsingum frá Bolungarvíkurkaupstað, almannavörnum, lögreglu og á upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkvann.
Stjórnvöld hafa samhæft aðgerðir vegna almyrkvans sem er lykilforsenda þess að taka á móti miklum fjölda gesta með öruggum hætti. Stofnanir og viðbragðsaðilar gegna þar hvert sínu hlutverki: Meðal þeirra eru almannavarnir, lögreglan, Ferðamálastofa, Landhelgisgæslan, Landlæknisembættið, Landsbjörg, Náttúruverndarstofnun, Samgöngustofa, Umhverfisstofnun, Veðurstofan, Vegagerðin, sveitarfélög, markaðsstofur landshluta og Íslandsstofa.