• Leiksýning við félagsheimilið

Félagsheimili Bolungarvíkur

Félagsheimili Bolungarvíkur er sannkölluð perla Vestfjarða.

Félagsheimilið

Sími 864-1515  - Arnar Stéfánsson,  umsjónarmaður
addibaddi63@hotmail.com

Bókunardagatal Gjaldskrá Félagsheimili Bolungarvík






  • Brúðkaupsveislur
  • Ráðstefnur
  • Fundir
  • Fermingarveislur
  • Tónleikar
  • Leiksýningar
  • Skemmtanir
  • Dansleikir
  • Fjölskylduviðburðir
  • Ættarmót
  • Jólahlaðborð
  • Skírnarveislur

Félagsheimli Bolungarvíkur (YouTube.com)

Bolungarvíkur var vígt 14. apríl 1952 og eftir gagngerar endurbætur og viðbyggingu var það enduropnað 14. apríl 2011. 

Félagsheimilið í Bolungarvík er búið öllum nútímaþægindum og kröfum um aðgengi fyrir alla. Allt aðgengi fyrir hjólastóla er til fyrirmyndar í öllu húsinu og engin hindrun að ferðast um húsið. Lyfta er á milli allra hæða húsins.

Stór 200 manna aðalsalur er í miðrými hússins og er þar stórt og mikið svið sem hentar vel til tónleikahalds og leiksýninga.

Fullkomið hljóðkerfi er í húsinu, 24 rása mixer og hljóðnemar auk sviðshljóðnema sem t.d. henta vel á leiksýningum.

Ljósakerfi hússins er mjög flott og einfalt í notkun.

Á efri hæð  er 40-50 manna salur sem hentar vel til smærri viðburða.

Skjávarpar eru bæði í aðalsal sem og minni sal.

Tveir barir eru í húsinu, einn í hliðarsal upp af aðalsal og hinn í anddyri við aðalsal.

Anddyri hússins er mjög stórt og er vel til þess fallið að bjóða uppá fordrykk og fyrir standandi veislur. Anddyri hússins tekur auðveldlega 100-150 manns í móttöku.